|
|
12.12.2007 09:48:18 / elisabet
já ég tek það á mig að ég hef ekki verið sú öflugasta að blogga inná þessa síðu, en þó tek ég mig nú til og kem með þær góðar af og til  einsog flestir vita þá er ég og minn heitelskaði nýkomin heim frá spáni úr yndislegri ferð besti afmælisdagur sem ég hef átt! hendi inn myndum um leið og netið er komin upp heima, allt að verða tilbúið þar, búin að þurfa fara sirka 5 ferðir í ikea til þess að kaupa hitt og þetta, annahvort er það gallað sem ég kaupi eða það vantar eitthvað í það sem ég hef keypt, enda var þolinmæðin mín alveg að springa þegar ég fór mína fimmtu ferð þangað!! ég búin í prófin sem er æði, stelpurnar flestar búnar á föstudaginn og á eftir að vera rosa stuð þá helgi!! mér datt í hug stelpur mínar þar sem við ætluðum að fara útað borða fyrir jólin er ekkert margar helgar í jólin það er bara næsta og þar næsta!! hvernig legst bara næsta helgi í ykkir???? 14 / 15 des ????? þetta er samt bara tillaga þannig endilega segið ykkar skoðanir! svo erum við líka í frí allar yfir jól og nýars það væri líka hægt að gera eitthvað þá ! við þurfum bara að finna einn dag sem við allar komumst, ætti nú ekki að vera erfit  vá hvað er stutt í jólin !! ykkar -ELísabet
»
07.11.2007 00:02:12 / Jovana
Hæj sætu stelpur (TORKA OG ELISABET) ég er orðin frekar spennt á að sjá myndirnar sem voru teknar fyrir svona 5 mánuðum eða eitthvað (nei ok er að ýkja pínu) allavega solldið langt siðan og svo myndirnar frá helginni... það eru svona 10 manneskjur búnnar að bjóðast til að setja þær á netið!! -með von um að fá að sjá myndirnar...og fyrirfram þakkir.. -Jovana..
»
03.11.2007 15:16:53 / Torka
jæja stelpur mæting kl 21:30 í kvöld á kaffi parís bannað vera mikið sein!!
»
31.10.2007 20:45:25 / Biddý
Jæja ... það virðist vera þvílíkur faraldur í gangi í blog.central.is heiminum, það virðast sem allar valmyndir með myndum og aukahlutum hafa verið hnuplaðar af geimverum og eru þær nú að skoða mydnir af unglingum íslands og eru að ákveða hverja á að gera af kóng sínum og drottningu og hverja á að nota í human testing, geimverur eru nefnilega á móti animal testing en ég meina human testing er allt allt allt annað... í öðrum orðum er ég að missa mig í bullinu en aðalatriðið er að myndir okkar og aukahlutir eru horfin frá netheiminum!!   Hélt fyrst að Skandra María hafi verið að fikta eitthvað en svo tók ég bara eftir að þetta gerðist líka hjá YSTA og bronze. Nema náttla þær hafa bara ákveðið að fylgja gelloz- tískunni og eitt öllum sínum valmyndum líka! gvöööð .. djöss hermikrákuuur Pooottþétt það sem gerðis En já nú er ég komin með nóg af þessu seinasta bloggi sem er búið að standa hér heil lengi þar sem Jovana okkar Schally fylltist þvílíkum rasisma í garð úglendinga, og í framhaldið af því beindist það bara að henni sjálfri m.a. og sagði bannfærða u- orðið aaaðeins og oft orðið sem ég er að tala um er úglendíngúr jesúss jovana helvítis rasisti ertu orðin!!! Svo dissaru Jón Eyþór fyrir að koma með ... ok.. aðeins of mikið reyndar .......af údleninga brandörum.. vaaaaá hvað ég hef ekkert að tala um!! ómægaad . Það er nú mjög svo lítið búið að vera ské hjá mér seinustu vikur vegna péningaleysis... virðist vera gat á buddum allra í borginni! Skellti mér meirasegja edrú á eitt stykki bjórkvöld en ég skemmti mér barasta alveg ágætlega í edrú gírnum. Mæli samt ekkert spes með því reyndar Svo var helgin bara asskoti edrú líka .. var að vinna allar nætur og svaf allann dagin eiginlega bara, helgin semsagt einkenndist í að tínu upp tóm glös af borðum, barþjónustu, horfa á fullar gellur með tígó taka alveg þvíííílík danspor á París (geðveikt fyndið samt) skutla fullu fólki og fullum kærasta út um allt, og skransandi eins og vitleysingur í hálkunni... það sem maður gerir ekki fyrir fullt og vitlaust fólk   edrú gellan í hnotskurn Óedrú gellan í hnotskurn hahaha ég er svo leiðinleg  Eeen talandi um hálku..sam ekki en ok.... ég er svo hræææðilega glataður einstaklingur til að keyra í hálku að ég tók pirrandi týpuna á þetta um helgina og keyrði eins og öldungur í umferðinni.. reyndar bara um nóttina þannig það tóku fáir eftir því. Neeeeema einn brjálaðingur sem lét eins og mest "æðri ökumanns týpa" bara vegna þess að hann var með bleikt TAXI merki á toppnum á benzinum sínum. Þarna var ég í makindum mínum keyrandi í brjálaðari hálku eins og eldgömul kona á 50 á 70 götu og fæ ég bara ekki þetta þvílíka háuljósablikk beint í augunn ... ég hunsa það bara og vildi sko ekki fara hraðar á skautasvellinnum sem við köllum götur reykjavíkur og hélt bara áfram mínu skrefi... þá byrjar þessi blessaði mannsveskju taxa keyrari að blikka mig eins og mesta hænsni og byrjar að fara soldið í pirrurnar á mér því þið sem hafið reynslunna þá er ekkert alltof gaman að fá háu ljósin beint í augun. Allavega þá fæ ég þessa frábæru hugmynd að ég er snillingur í hefni aðgerðum. Þannig ég læt eins og ekkert sé stíg #hóst "létt" á bremsuna (btw þetta var einstefnugata) og færi mig úr 50 á 70 götu og yfir í 20 á 70 götu og hana nú!! Svo hlæ ég ein í bílnum eins og mest geiðveikasti einstaklingur í umferðinni og skemmti mér konunglega af leigubíladrivernum... hann alveg blikkandi eins og mesti vitleysingur en ég hélt mínu kúli í að vera pirrandi. En þetta er ekki þeirri frásögn færandi en ég fékk bara mest puttan þegar hann keyrði framhjá sem ég hef á æfinni fengið og þá dó ég aftur úr hlátri yfir master planinu mínu um að toppa hann í pirrandiu týpunni. Ég mæli með þessu ég meina það segir enginn "méér" að fara hraðar ef ég vil það ekki!!    En já gaman að þessu. hahahaha það er ótrúlegt hvað kemst í blöðin þessa dagana! ég ætla að skella mér í gervi fréttamannsins sem hefur ekki litið dagsins ljós á þessari síðu í dágóða mánuði og deila með ykkur asnalegum fréttum sem ég var að lesa: ÞVAGI VARPAÐ AFTUR Á SÓÐANNA: Yfirvöld í París hafa fundið þessa fínustu leið til að koma í veg fyrir að karlmenn kasti af sér vatni á almennafæri. Þróaður hefur verið veggur sem gefur eftir við minnsta þrýsting og varpar þvaginu aftur á sóðann sem losaði það. Í öðrum orðum þá pissar veggurinn á þig tilbaka!! hahaha það sem er ekki til! Prufuútgáfa hefur verið sett upp á fjölförnum stöðum í París og reynst vel. 116 ára appelsína fer á safn: Uppþornuð 116 ára gömul appelsína fúr nestisboxi námuverkamanns er nú til sýnis á safni í Bretlandi. Appelsínan var í eigu 37 ára gammals námuverkamanns sem slasaðist í sprengingu og lést þennan sama dag og hann skellti appelsínuni í nestisbox sitt árið 1891. Fjölskylda hans fékk síðan í hendurnar nestisbox hans og einhverra hluta vegna hefur þessi appelsína erfst milli kynslóða þar til seinasti erfingin hú Pam Bettaney ákvað að setja þessa appelsínu sem langalangaafi hennar átti til sýnis á safni. Hversu heimskt fólk er að vinna á safni nú til dags??! bara jájá þessi myglaða appelsína á sko heima hér!, setjum hana hliðin á spjótsoddi sem við fundum í gröf víkings frá árinu 1459. Ok semsagt ef ég hræki eina dágóða slummu í krukku og læt hana erfast í hundrað ár innan minnar fjölskyldu, fer hún þá á safn?? Töff stöff!!! En nú er komið gott af því að dissa heimsk fólk á söfnum og pissandi snilldar veggi. En ég ætla samt sem áður að nýta þetta tækifæri til að minna ykkur stelpur að það er skyldumæting á París á laugardaginn!! það er alltof sjaldan sem við gerum eitthvað svona! þannig Ásta! Byrjaðu að mjólka! Bylgja! fáður þér frí! Thelma! koddu heim úr sveitinni! Og beta! þú getur alveg hitt stelpurnar sem þú hittir eiginlega alltaf í vinnunni seinna um kvöldið Þannig ef einhver beilar skuldar hann mér 500 kall!! OK? Gott mál   OVER AND OUT Biddster das incredible.... . Peace ooout
»
25.10.2007 19:54:00 / Jovana
Blogg, Peningaleysi, Útborgun, fullorðinn, jólainnkaup og útlendingar!!! Jæja við erum ekki alveg að standa okkur eins og við ættum að gera enn það verður bara að hafa það, Ásta er með gilda afsökun þar sem hún á barn, Sandra á enga afsökun hún er bara löt og ásamt henni má nefna Elisabetu,Valeriju,Torku, Thelmu and soooo on og svo erum það ég og Bryndis sem skrifum af og til einhverja skitu hérna.. Allavega.. þá styttist i útborgun,loooooooooooksins... þar sem mér finnst eins og þessi mánuður er búinn að vera 1000 ár að liða þar sem ég er ekki búin að eiga krónu, get heldur ekki sagt að fólk i kringum mig hafi verið eitthvað ríkt !! þannig að það má eiginlega segja að október mánuður einkenndist af peningaleysi.. en svo fór ég að hugsa, i hvað fara peningarnir minir ?? og hef bara áttað mig á þvi að það er fokking pirrandi að vera orðinn svona fullorðinn og þurfa að borga allt SJÁLFUR, og geta ekki lengur verið að treysta á mömmu/pabbaBANKANN!! já það sökkar!! Nú er bara ef þú villt eitthvað þá geturu bara borgað það sjálf/ur!! Svo var ég lika að spá i þvi að það eru BARA 4 OG HÁLF vika eftir af skólanum ég er i SJOKKI! svo er ekki meira enn einhverjir örfáir dagar til jóla..!! og pælið i þvi að nóvemberúrborgunin mun bara bara i einhver jólagjafarkaup sem ég persónulega HATA að þurfa gera! væri svoooo til i að geta bara fengið einhvern útlending til að kaupa allar gjafirnar sem ég þarf að kaupa, en svo var ég lika að pæla að ég er útlendingur og mundi ekki nenna að gera það fyrir einhvern þannig að þetta er bara búið áður enn það byrjaði hjá mér!! I kvöld er helst á dagskrá: Söngvakeppnin i FB sem fáum virðist finnast eitthvað spennandi og svo auðvitað gömlu góðu bjórkvöldin sem eru búin að vera SLÁ I GEGN undanfarið! haha það er endalaust fyndiðað setja edrú úti horni að horfa á vængefið ölvað fólk eins og til dæmi tvær gellur að nudda sér upp við hvor aðra og halda að það sé sexy hahahah, söndru mariu að ráfa um, strákana i einhverjum hóp dönsum (allir svona samanþjappaðir) svo kemur lika fyrir að þeir eru berir að ofan hahah !! Svo var ég að heyra að það sé eitthvað Ghettó ball i FB sem Ýr fannst alveg stórfyndið og var alveg i spreng yfir þvi, og ég er nú voða litið Ghettó pía þannig að ég læt það ball alveg eiga sig!! Jæja ég vona að allir hafi gott kvöld og helgin sem er að koma framundan verði bara góð hjá öllum!! Schally kveður alveg brjáluð yfir jólainnkaupunum!! -Svo var ég lika að pæla.... ef það er einhver utlendingur þarna úti sem langar að fara versla jólagjafir þá má hann endilega tala við mig, og JÁ ég er búin að tala við alla útlengingafjölskylduna mina en þau eru öll upptekin! -Jovana.... 
»
20.10.2007 15:54:16 / Biddý
Mér fannst kominn tími á nýtt blogg þar sem við erum búnar að gera Söndru vandræðilega með þessari mynd alveg nógu lengi ... hmm... samt semi nógu lengi... er þar með að pæla í að setja hana á þetta blogg líka  það væri geðveikt fyndið  Söndrulegasta mynd í heimi! Vá nú veit ég ekkert hvað ég get talað um þannig ég er ekki frá því að ég á eftir að enda með að bulla ietthvað kjaftæði eins og ég á til að gera .. crap.... jæja þá er ykkr bara nær að lesa þetta! hahahaha ok fann eitt bullið til að tala um..... ég var að horfa á eina fyndnustu mynd í heimi, hún er samt engan vegin fyndin en ég skemmti mér konunglega með að horfa á þetta bull! Myndin til umræðu er sú sem að tröllreið bandaríkjunum á sínum tíma hjá litlum 13 ára unglingstelpum mundi ég helst giska á, myndin heitir High School Musical og er mesta della, mest illa leiknasta, mesta vitleysa og asnalegasta mynd nútímans og fannst mér hún geðveik! Haha eins og Tinna systir sagði "vá hvað manneskjan sem gerði þessa mynd hlýtur að hafa verið "high" sem er örugglega svooo satt. Steikar mynd. Hún er semsagt söngmynd sem fjallar um tappa skólans sem er "the man" og er alveg á svona bilbordum og plaggötum um allan skólan og er aðal körfuboltagæjinn og bara.. já ... "tha man" ......sem allir elska og allir vilja vera venör, og hvernig hann kynnist stelpu sem verður síðan "the new görl" í skólanum og er geðveikt gáfuð og er í einhverjum efnafræðiklúbb og eithvað blablabla. Svo vilja þau fara í high school musicalin, eða söngleikinn eins og maður á að segja en ég missi mig alltaf í ensku slettunum, því þau uppgvötva allt í einu að þau geta sungið (sem þau gera í gegnum alla myndina ) og þá verður allur skólinn brjálaður því hún á bara að vera fallega efnafræðinördið og hann á að vera tappinn og útrætt mál. Og svo kemur bara óendanlega mikið af hræðilegum leikaraskap og asnalegum atriðum og mjög svo hallærislegum söngatriðum í gegnum alla myndina sem er svo fyndið, en þar sem þetta er týbísk Amerísk mynd þá gengur allt að óskum, þau vinna söngleikinn og allir elska þau og allir styðja þau og allir enda með að syngja í endann öll saman, alveg 500 manns eða eitthvað í þessu atriði, meirasegja "vondu kallarnir" í myndinni sem voru 2 systkyni sem vildu vinna söngleikinn eru allt í einu geðveikt góð í þessu flotta lokaatriði. Allavega þá mæli ég með að þið sjáið ekki þessa mynd nema þið séuð méð lélegan húmor  
Ok nú varð ég kjaftstopp og systir mín sagði mér að skrifa um hver var fyrsti forseti íslands!! Hversu leiðinlegt umræðuefnni svona án djóks en hins vegar í kjölfarið af þessu commenti frá Hröbbu komst ég að því að ég bara hef ekki hugmynd um her í fjandanum var fyrsti forseti Íslands!! ... ég vil meina að það var Jón Sigurðsson en hann var samt forseti alþingis, þannig ég er ekki viss. Váááá hvað ég veit ekki neitt um íslenska pólitík en ég menia ekki kvarta ég verð ég að viðurkenna .. finnst pólitík drep leiðinlega en upp að vissu marki samt  get alveg talað um hana ef ég hef EKKERT að tala um....... Svona eiginlega eins og núna góðsaga! mjög svo 
En nú er helgi og ég hef ekki hugmynd hvað á að gera í kvöld.. veit ekki hvort það er djamm víst ég gerði ekkert í gær ... eða rólegt kvöld með kæró (vá ég á aldrei eftir að venjast þessu orði) en tíminn leiðir víst allt í ljós með valningu dagskráar kvöldsins . Langar soldið að djamma en það er samt svo óóógeðslegt veður!!! Það eyðileggur svo stuðið! jæja... þetta er allavega pæling dagsins Hey ég ætla að nýta tækifærið þar sem ég HELD að allir meðlimir gelloz- kíkja allavega einstaka sinnum inná þessa síðu Allavega ég ætla að kveikja upp umræðunni um að við þurfum nauðsynlega að fara í bústaðarferð von bráðar stelpur!!! það var svo gaman seinast þrátt fyrir grenj, drama, leiðinlegt trúnó útí eitt, nöldur, slagsmál og ofurölvun en jæja .... er það ekki bara gaman? þannig eiga bústaðarferðir víst að vera... eða í minni reynslu þá er það það sem gerist alltaf í svona ferðum, hef ég heyrt líka. En jæja hverjar eru til!??? ef einhver er ekki til þá verður hann eða reyndar hún að gefa sig fram svo við getum byrjað að suða í þeim einstakling til að fá hana til að breyta um skoðun á þessu máli. En ég spyr líka Ástu hvenar hún mundi helst vera tilbúin til að fara í bústaðarferð   Hey ég ætla líka ð deila því með ykkur að loksins ákvað ég að væri komið gott með kjarksöfnun í þetta bölvaða bílpróf og fékk mín það ekki bara þann 8 okt. og er ég búin að vera að krúsa um á hinum ýmsum bílum á götum borgarinnar síðan að fíla mig í drasl... fólk nátúrulega þvílíkt flippað eitthvað "shiiit , ÞÚ komin með bílpróf, ég er farin að fá mér þyrlu" og eitthvað meira álíka ófyndið  Fékk alveg þessi ýmsu lélegu skot sko. ég mundi reyndar ekki stimpla mig einn sá besta ökumann en ég meina með æfingunni kemur þetta Og með þessari umræðu vil ég óska seinasta gelloz- meðliminum til að fá bílpróf til hamingju, það mun vera engin önnur en Valerija Bibic, hún tók bílprófið með trompi og er eflaust að fara að taka mig á þetta á næstu dögum og gera ekkert annað en að keyra að tilgangslausu, sem er náttla bara gaman............ í fyrstu ég og Valí að krúsa
En nú er ég komin á það stig að ég geeet bara ekki lengur hunsað draslið inni hjá mér!! þannig ég er ekki frá því að ég er bara farin að taka til... sem ég er búin að ætla gera alveg seinustu vikurnar eða eitthvað álíka ósmekklegt... þannig ég kveð yður kæru mannsveskjur í bili og bara au revoir (held ég að maður skrifar þetta svona) Ykkar Bryndís Eyjólfsdóttir p.s. vaarð hahaha        
»
07.10.2007 16:36:45 / Jovana
hahaha ég sá þessa mynd af henni sköndru og fannst hún bara ógeðslega fyndin... Þessi mynd lýsir söndru svo klikkað vel hahahah... Sérstaklega þessi bjórblettur sem hún er með á bolnum sínum hahahahah!!! Þú ert snillingur Sandra!! -Schally
»
05.10.2007 18:30:19 / Jovana
Váá váá váá váá, hvað það var sjúkt gaman á bjórkvöldinun i gærkvöldi, er ekki frá þvi að allir hafi verið þarna og allir voru bara blekaðir, mátti sá bronze stelpurnar,Ysta og fullt af öðru celeb fólki.. Gaman að segja frá þvi að fólk fékk útborgað á mánudaginn þannig að peningarnir voru ekki sparaðir, skandra eyddi svona 5000 þús sem hún átti alls ekki efni á að gera!! Allavega byrjuðum að hella i okkur heima hjá Söndru, ég hún og Ýr og svo komu Jói,Benni og Snorri og Brundis (Bryndis)..vorum þar bara i góðum félagskap ásamt mömmu hennar Sköndru og Ólöfu systur hennar.. Helltum i okkur og drýfum okkur svo á bjórkvöldið i taxa.. Þar mátti sjá eins og ég var búin að segja eiginlega bara alla i annalegu ástandi.. Dansgólfið var lika troðið af fólki i sleik og einhverjum dirty dacing..sem er ekkert nema bara gott mál! allavega... Man eiginlega ekki með hverjum ég var allt kvöldið, var eiginlega bara útum allt, Skandra var einmitt að nefna það áðan þegar ég talaði við hana að hún var lika mest bara á röltinu ein, þar sem ekki var vitað um hinn hlutann af henni þ.e.a.s Þórunni Elvu þvi að hún vist beilaði aðeins fyrr enn lokaði..?? Sandra Björk var lika svo góð að joina mig i tequila á barnum og vildi ég bara þakka þér fyrir það Sandra min.. Pæliði,ekkert eðlilegt hvað tíminn liður hratt, það eru bara 2 mánuðir eftir af skólanum, og svo koma bara jól ótrulegt!! Enn helgin verður vonandi tekin bara rólega, eða allavega i kvöld og höfum ég,Ýr,Skandra og Tóta ákveðið að skell aokkur út að borða svo kannski i bió eða spóluchill, eða það var eiginlega Ýr sem ákvað þetta fyrir okkur og við eigum bar aað mæta hahah Svo hver veit, kannski endum við bara fullar i kvöld eða eitthvað, kæmi það allavega ekki á óvart,sérstaklega þegar maður er að plana eitthvað með Sköndru og Tótu!! hahah!! Anyway.. það var eiginlega ekkert fleyra sem ég ætlaði að skrifa, og ekkert spennandi sem ég hef skrifað..bar aóheppin þið sem enduðu á þvi að lesa þetta blogg ... -Schally ( þar sem fólk er bara hætt að kalla mig Jovönu)... Man að Skandra byrjaði á þvi, Ingimar hefur bara alltaf kallað mig það og nú virðist ég bara heita Schally..allavega ..OKEY BÆ hahah 
»
01.10.2007 01:12:11 / Biddý
Nei sælar.. ég var komin með upp í kok á að fara inná þessa síðu og ALLLTAF sjá sama helvítis bloggið síðan ég veit ekki hvenar! Við erum alveg að gera góða hluti í letinni við þessa síðu.. orðið á götunni er hvort eð er að blog.cetral.is er að detta nuiður vegna þess að myspace-ið kom allt í einu sterkt inn í leikinn og er gjörsamlega að TRÖLLRÍÐA netheiminum... klárlega allavega það sem ég skoða helst.. svo svona inná milli "hey já gelloz- síðan.. alveg rétt" en maður reynir víst að breyta því ... Í framtíðnni eru að fara koma nýjar myndir inná síðunna (thank god) en ef ég þekki Torku rétt þá á hún ekki eftir að nenna því strax nema við spörkum aðeins í rassin á henni, og þar með kvet ég ykkur kæru netbörn að hjálpa mér í að hvetja vesalinginn hana þórkötlu aðeins áfram í myndamissioninu. Þetta eru semsagt myndir m.a af seinasta bjórkvöldi á klúbbnum sem var alveg ógeðslega skemmtilegt bjórkvöld!! Og mig minnir að hún hafi verið með myndir frá núna í gær, semsagt seinasta laugardag. En nú er ég stödd í FB í lífinu.. sem er bara skítsæmilegt verð ég að viðurkenna.. án alls efa ekkert MS á góðu árunum en samt sem áður bara ágætt Er einmitt búin að fara á eitt ball sem var SNILLDIN ein í sauðklæðum og bjórkvöld sem var .. hvað er orðið aftur .. segjum bara asskoti gaman. OOOOG ÉG! Bryndís Eyjólfsdóttir er AÐ MÆTA!!  Mínir kæru fyrrverandi samnemendur .. semsagt MS-ingarnir, kannski trúa því seint, Bjöggi t.d hló að mér þegar ég sagði honum fréttirnar, en ég meina ég er allavega sátt með mig . Get samt ekki sagt að skróparinn detti ekki stundum inn, sérstaklega á föstudögum í leikfimi í FYRSTA tíma eftir bjórkvöld eða böll en hver er nú pörfect?!  En nóg um það, nú er helginni að ljúka sem einkenndist af því að horfa á vini mína djamma þvílíkt góðu djammi meðan ég var að vinna við að gera kokteila handa þeim AFTUR, og AFTUR og aftur og AAAFTUR! ómægad hvað það var drukkið mikið af kokteilum í gær, ég var að vísu ekki meðal þeirra kokteildrykkjumanna heldur bara áhorfandi! Gaman að segja frá því að það var PAKKAÐ á Café París í gær og alveg brjááálað að gera og var ekki lokað fyrr en um 5 semsagt ég var búin að vinna svona um 6 leitið! ómægad! En kvöldið einkenndist aðalega af fólki brjótandi glös að gamni sínu og ég alveg kexbrjáluð "ef ég sé einhvern ekki með glasið sitt í hendinni þá HENDI ég honum úT!!" (einhverjir littlir guttar sem voru að mölbrjótaglösin sín einhverja hluta vegna?!) Og það einkenndist líka svolítið af því að V.I.P herbergið var að gera góða hluti þetta kvöld.. labbaði t.d 2-svar inn á par þar inni í S-inu sínu (#vandræðilegt? neinei ) og ég hef þær heimildir að það var fólk sem ég nefni ekki á nafn í þrísom þar! .. eins og ég sagði þá var allt í RUGLINU þetta kvöld og ég hrofði uppá þetta allt EDRÚ! sem er reynslan ein! mjööög skemmtilegt kvöld samt í heild sinni   Og nú eftir heilt ÁR við að safna kjarki til að taka þetta bévítans bílpróf þá ákvað ég um daginn að láta til skara skríða og skella mér í það bóklega og viti menn!! þá náði ég bara í fyrsta! (takk, takk) Og nú bíð ég bara eftir að Ólafr Lár komi heim frá Þórsmörk með litlu krílin úr seljaskóla svo ég get farið að skella mér í verklega pakkan af prófinu, so wish me luck folks!  soldið stressuð fyrir þetta verklega samt því gaman að segja frá því þá er ég mjög lítil eða smávaxin mannsekja og nú hugsa örugglega nokkrir "no shit" oooog Peugeot bílarnir, eins og þessi sem ég tek prófið á, eru svo skemmtilega gerðir fyrir hávaxnari kyndslóðina, sme er reyndar bara venjuleg hæð  . Allavega, þegar ég set sætið eins framalega og það kemst! þarf ég samt alveg að tipla til að ná alveg niður helvítis kúpplinguna! sem er vængefið pirrandi!! og erfitt! Alltaf geðveikt erfitt fyrir minns að skipta um gír! Jæja ég ætla bara að gera smá kynningu á því hvað er að gerast hjá okkur stelponum: 
Hún Ásta María Gunnarsdóttir a.k.a MILF er á fullu í móðurhlutverkinu og gerir það frábærlega, því elskan okkar eignaðist lítinn ónefndann Aronsson þann 10. ágúst síðastliðin og gengur allt vel og er littli gæjinn mesti gullmoli í heimi!! Þar á milli er hún að sjá um kallinn sinn hann Aron Jarl og eru þau alveg þvílík happy og sátt lítil familía, og svo er hún líka að stunda nemendann í MS á félagsfræðibraut og alveg þvílíkt mikið að gera hjá gellunni  
Þórkatla Eva okkar Víkingsdóttir a.k.a Torkító my Pító er á fullu í FB ásamt mér, og er hún á snyrtibraut og er á fullu í lærdómnum. Þess á milli er hún að vinna með mér á Café París og tröllríðum við barnum þegar við fáum tækifæri, einnig er hún stundum að vinna í blómabúðinni Dögg sem foreldrar hennar eiga, svo er littla skeppnan á fullu í öllum sínum frítíma við að sinna og njóta þess að vera með ástinni hennar honum Hrafn Davíð Hrafnsyni og gengur vel hjá þeim eins og í sögu og eeeins og alltaf  
Thelma Björk Steimann a.k.a Steimæster er orðin húsmóður á Selfoss og gengur um í lopapeysum og gúmmístígvélum í sveitinni. Hún er einmitt eins og hinar á fullu í skólanum FSU að læra stíft á Listabraut í fatahönnun og gerir góða hluti þar á Slefoss ásamt elskunni hennar honum Hafþóri. Þau eru þar með littla íbúð sem á víst að vera rosa sæt en því miður höfum við ekki getað skroppið í heimsókn því einhverra hluta vegna finnst okkur eins og það séu 8 tímar að keyra á Selfoss ekki hálftími! en við ætlum að kippa því í lag í vikunni.  
Hún Sandra María mín Fillippusdóttir a.k.a Skandra Naría er líka á fullu í skólanum í MS á félagsfræðibraut og elskar MS með öllu hjarta eins og við hinar fyrrverandi MS-ingar. Þess á milli er hún að vinna eins og mesti brjálaðingur í Sambíónum Álfabakka að vinna sér inn péninga. Hún var einmitt svo veraldravön í sumar og flutti til DK ásamt Þórunni Elvu og var víst mesta stuð hjá þeim þar Nú er hún einmitt komin með bílpróf og er alltaf rúntandi um í Focusnum hennar Ríkeyjar, og það kemur mér á óvart að hún er bara hörku góður ökumaður hún Skandra okkar    Jovana Schally a.k.a Jóhanna (haha ) er á fullu með okkur í FB á viðskiptabraut og gerir góða hluti þar þó hún sé óvenju oft á "klóstinu" þessi litli vargur, semsagt fer niðrí matsal, og hengur með mér, Agli og Jón Eyþóri "klósett förum" Þess á milli vinnur hún með Söndru í Sambíónum Álfabakka sem yfirmaður. Þegar hún er ekki að því þá rúntar hún um á glænýja kagganum sínum honum Baby Blue eða "Baby" eins og við köllum hann. Hún skellti sér einmitt til serbíu í sumar og skemmti hún sér vægast sagt alveg snilldarlega.

Valerija okkar Bibic a.k.a Valí Baby er einnig í MS á félagsfræðibraut að gera góða hluti og lærir á fullu eins og mesti vitleysingur. Þess á milli vinur hún í Rúmfatalagernum í Skeifunni og gengur vel þar einnig eins og í öllu öðru sem hún gerir. Hún var einmitt í Serbíu í sumar ásamt bestu vinkonu sinni henni Jovönu. Saman skemmtu þær sér eins og sannir konungar þetta sumarið eins og þær gera alltaf. Hún er einmitt byrjuð að læra á bíl og er á fullu í ökuskólanum og kemur hún eflaust næst í röðinni á eftir mér með bílpróf von bráðar  
Bylgja Dögg Sigurðardóttir a.k.a Rufus/Bylgja Tatoo er reyndar ekki gelloz- meðlimur en ein af okkur samt sem áður. Hún er einmitt með okkur í FB á Almenni Braut og gerir góða hluti þar. Þess á milli er hún að vinna sem vaktastjóri í símaveri Dominos og líka að vinna í Sporthúsinu og líka að hjálpa til að þrífa Óðal og eyðir restinni af frítíma sínum með ástinni hennar honum Þormóði Árna Jónsyni og eru þau þvílíkt happy saman og gengur vel. Þegar hún hefur 5 min frí hengur hún með minns  
Elísabet okkar Guðmundsdóttir a.k.a Beta Rokk og er hún að læra eins og maniac í kvöldskóla FB en ætlar að joina okkur hinar í dagskólan næstu önn og bíðum við spenntar. Elísabet notar frítíma sinn með skólanum við að vinna í Bianco og er alltaf að prufukeyra nýjar vinnur með Bianco eins og Silfur og fl. Þar á milli hugsar hún um gljann sinn og ástina hann Rúnar og eru þau voðalega hamingjusöm saman eins og í sögu. Hún og SAndra Björk skelltu sér einmitt til Flórida og skemmtu þær tvær sér saman eins og sannar drottningar þarna úti   AS FOR MEE, Bryndísi Eyjólfsdóttur a.k.a Húlíó, Valtysson, BóBó, Biddý brjál .. nú kvóta ég Thelmu, ég er sú sem er mest fullorðin af okkur öllum því ég er búin að drekka kaffi lengst og hana nú! Annars er ég góð bara en þú? Er á listabraut í myndlist í FB og gengur vel. EEnyhow mér er soldið farið að leiðast enda er þetta lengsta blogg nútímans en vonandi skemmtuð þið ykkur vel að lesa þetta blessaða blogg því ég fórnaði þvílíkum tíma sem ég hefði getað að vera að horfa út í loftið við að gera þetta |##∆¬©ƒı…¥ƒ®#$∂߀߬ˆπ°!!! blogg!! Og svo er nátúrlega alvarleiki málsins það að hveeer! hefur eitthvað betra að gera en að lesa óendanlegt blogg um ekki neitt eftir MIIG ... svar: Enginn ...nákvæmlega, Djöful er fólk klárt í dag!  ...... Ok vá þetta er komið í eitthvað rugl, ég er farin bleee..   KV. Biddý brjál, Hulio, BóBó, Bryndís, Valtyson
»
19.09.2007 20:37:58 / Jovana
Jæja eins og flestir vita þá við stelpurnar erum orðnar "frænkur" þar sem Ástan okkar er búin að eiga já eins og búið er að koma fram sætasta strák i heimi!!! Ég ætla að setja nokkrar myndir af Lilla til að leyfa ykkur að sjá hvað við erum heppnar og þá fyrst og fremast Ásta og Aron!!! 



Já eins og þið sjáið þá er þetta eitt sætasta barn sem ég hef séð !!! Enda komið af fallegum foreldrum 
Takk fyrir mig! - Jovana
»
03.09.2007 00:41:34 / Biddý
Ég var að henda öllum myndunum frá því í gær inná myspacið mitt , þannig þið getið skoðað þær þar elskurnar mínar  svo langar mér líka enn og aftur að óska henni Bryndís til hamingju með daginn í gær ! 
það eru ekki allir jafn svalir og töffaðir á því einsog hún Bryndís
svo er líka engin önnur en hún góð vinkona mín og frábæra manneskja yndisleg að öllu leyti sem á líka afmæli í dag og er gaman að segja frá því að ég var sú fyrsta sem óskaði henni til hamingju með afmælið fyrir gellozar hönd vil ég bara óska þér sandra mín hjartanlega til hamingju með daginn og vona ég að þú eigir eftir að eiga frábæran dag hérna er þessi dásamlega elska  ooo svo sæt
hérna er nokkrar myndir fráafmælinu í gærkvöldi  


afmælis barnið að sturta í sig  

takk fyrir frábært kvöld stelpur mínar ykkar ELísabet
»
27.08.2007 15:38:21 / Jovana
Já eins og allir eru búnnir að sjá þá er síðan nokkurnvegin búin að deyja, enn við ætlum vonandi að breyta þvi héðan i frá...!! Sumarfríið á enda, skólinn byrjaður, Krakkarnir komnir frá BENE, ég og Valerija komnar heim frá Serbíu, Ásta Maria búin að eiga sætasta dreng i heimi, Elisabet komin með kæró, sama má segja um Bylgju, Thelma Björk flutt með kærastanum til Hnakkabæjar (selfossar), váá´a það er svo margt meira sem búið er að gerast enn ég nenni bara ekkert að nefna það allt..þetta var það svona helsta!!! Allavega þá er ég kom heim frá Serbiu eftir að hafa verið þar i næstum 3 mánuði, tíminn leið ógeðslega hratt og var ég ekki alveg sátt með það enn svona er lifið bara, Má segja að sumarið hafi farið i þetta = EYÐA PENING, DJAMMA, SOFA, VERA ÞUNN, HANGA Á SAMA KAFFIHÚSI HVERN EINASTA DAG,get ekki sagt að ég og valerija vorum duglegar að liggja i sólbaði.. Veðrið var klikkað veit ekki hversu oft mér leið þegar eg labbaði út ur ibúðinni eins og ég væri að labba inn i brennandi heitan ofn, maður gat varla andað.. enda fór hitinn hátt upp i 45 stiga hita... Ég og Valerija vorum þó ekki duglegar við að taka myndir ég hugsa að við tókum myndavélina með á djammið kannski þrisvar sinnum og það var afmælið hennar Valeriju og eitthvað meira.. hérna eru nokkrar myndir: Krakkarnir komnir af Bene, get ýmindað mér alla skandala sem urðu i þessari ferð.. var samt alveg bókað klikkað gaman hjá þeim.. Ég vil byðja þær sem voru á BENE að koma með ferðasögu..!!! 
Allavega ég nenni ekki að skrifa meira, eða um Serbiu ferðina mina og valeriju þar sem við vorum svo ógeðslega lengi og margt gerðist að ég veit bara ekki hvar ég ætti að byrja.... caooooo......
»
10.08.2007 14:56:46 / Biddý
10.08.07
Ákvað lítill drengur að nafni
Aronsson
að koma í heiminn í kringum 1
um
hádegi!!!
  
Ný bökuð mamman og pabbinn þau
Ásta
María og Aron Jarl segja littla son
sinn
vera algjöran sjarm!!
Hann er 14 og hálf mörk og 51 cm,
10
tær og 10 puttar, með mikið dökkt
hár
eins og pabbinn
 
Viljum við óska þeim innilegra
hamingju
óskir og bíðum spenntar eftir að
mega
sjá littlu fjölskylduna
okkar!!!
 
nú ætla ég að fara að fá
mér vatnsopa þar sem ég er búin að vera hoppandi um allt herbergið
mitt síðan ég frétti af litla manninum
 
Svo vill 'eg Jovana baeta tvi inni ad hun
godvinkona okkarValerija Bibic vard 18 ara einmitt
sama dag og litli aronsson faeddist...
Betri afmaelisgjof gat hun ekki fengid fra astu
og aroni.....Kossar og knus til valeriju, astu og aronas og auvitad
litla prinsin...Kvedja fra
serbiu....Jovanaaaaaaaaaaaaaaaaa
»
06.08.2007 21:50:20 / Biddý
»
03.08.2007 22:41:46 / Biddý
Sælt
veri fólkið 
Ætlaði
að skella inn örstuttu bloggi, þar sem ég hef ekki bloggað í ár og
aldir ! 
Enn
langaði bara að tjá mig aðeins hérna og koma með ógeðslega heitar
fréttir, en við stelpurnar ætlun allar að taka helgina eins og
hverja aðra hegi og halda okkur í Reykjavík, þó að Torka hafi nú
verið með aðrar fregnir hérna í blogginu fyrrineðan
mig..
Ég
hafði nú alltaf ætlað að eyða þessari helgi í bænum, en haffi var
búinn að titla mig þeim heiðri að vera leiðinlegasta kærasta í
heimi. Svo við ákváðum að eyða helginni á Húsafelli með systur hans
haffa og detta í það í góðum félagskap. Var ekki að nenna að keyra
til Akureyrar fyrir tvær nætur og vera að fara út 3 dögum eftir að
ég kæmi heim. En svo bárust okkur þær fréttir um aldurtakmörk inn á
tjaldsvæðin. Við erum að tala um það að á Laugarvatni td. er 30
aldurtakmark..bíst við að ellismellirnir fjölmenni þar. Þessi helgi
á að vera skemmtun og fölskylduhátíðir um allt land, skil ekki
hvers vegna við unga fólkið úr fjölskyldunni megum ekki mæta líka
Eldra fólkið er ekkert skárra en við, hvar annarstaðar lærum við
þessa hegðun?En við ákváðum öll bara að vera í bænum og gera bara
eithvað virkilega gott úr þessu öllu saman.
Enn það
eru 6 dagar í Bene , eftir nákvænlega 1 klst eru 5 dagar
AHHH!!!
Ég er
að fara svo að flytja til Selfossari daginn sem ég kem heim og fara
í FSU með mínum heittelskaða og ætla að leggjast í
fatahönnunarnámið, finnst það rosalega spennandi og held að ég eigi
eftir að blómstra þar Veit að hún Torka náði öllu í
sumarskólanum og fer beint í snyrtifræðina í haust, bryndís færir
sig yfir í FB líka eftir tvö glæsileg föll í MS og hún fer á
listabraut.
Ásta ætlar að vera mamma í vetur, frétti að barnið ætti
að heita Thelmi Bjarki, finnst það mega töff . TAKK Ásta

En við
Kjartan og Hafþór ætlum í bæinn núna eftir smá og geria eithverjar
skyssur..
SEEE
YAAA (á BENEDORM meiby??) !!!!
Thelma
Björk
»
Síður: 1 2 3 ... 26
|
|